Gaman

Name: Grímur

Sunday, February 27, 2005

Án húmors en mjög hress

Ég er 10 ára í dag. Það er bara ansi gott hjá mér!

Hef verið að skrifast á við Jack Kverúlant og allar hans systur og bræður sl. daga. Annað hvort er ég svona ótrúlega óskiljanlegur nú eða þau án hæfileikans að sjá apstrakt - líklega bara svoleiðis.

En það er stuð alla daga.

Tuesday, February 22, 2005

Helga er borgarstjóri

Var rétt í þessu að hlusta á fyrrverandi borgarstjóra Sjálfstæðisflokksins, Markús Örn Antonsson, útskýra það hvers vegna Helga Vala fékk ekki vinnu hjá fréttastofu sjónvarpsins (hún sótti reyndar um vinnu á fréttastofu útvarpsins). Hann bar pólitíska fortíð sína saman við Helgu Völu og greinilegt er að Markús álítur Helgu Völu vera innsta kopp í búri í pólitíkinni.

Það er alveg ótrúlegt hvað hægt er að fórna miklu fyrir ekki neitt. Helga Vala var langt í frá einhver trúnaðarmaður flokksforystu VG og vinir hennar eru fæstir í þeim flokki. Ég persónlulega er ótrúlega lítið inn í hringiðu flokksins og því er ömurlegt hvað titlingaskítur geta skemmt jafn mikið fyrir fólki eins og raun ber vitni. Þetta er alls ekki þessi virði.

Egóið er að drepa mig og því er varavarastaða ekki ásættanleg. Að gagnrýna valdaklíkuna er ekkert annað en pirringur yfir því að fá ekki að vera með. Æm tú breiskur for this sjitt - grenja bara þegar stóru strákarnir leyfa mér ekki að vera með.

Annars skiptir þetta engu máli - það eina sem skiptir máli er að Ásta Júlía er 4 ára í dag!!!!!

Monday, February 21, 2005

Sykurpúðar

"Hvnær kemurðu aftur fúleggjahommi?" - svona ortu menn þá. Í dag yrkja menn enn, þó mér þyki það ekki alltaf skemmtilegt.

Osló er ekki skemmtilegasti og heitasti staður veraldar. Enda eru þeir ekki með neinar svona "dirty weekend's" - bara svona ferkar straight allt saman. Það var þó mannamánuður á hótel Munch. Það var í boði að spila Play station á herbergi 210. Ég gerði það og fór í byssó við sjálfan mig og varð sjóveikur eftir að hafa horft í 10 mínútur á sjónvarpskjáinn - lá í klukkustund í rúminu eftir. Síðan las ég blaðið Vi menn sem er einhverskonar soft core Samúel - það er ekkert sérstaklega æsandi að hugsa um þannig blað....eða hvað? Vi menn var líka í boði hússins ásamt kókflösku. Þetta var mannamánuðurinn. Síðan kom ég heim og þá var auðvitað konudagurinn.

Saturday, February 12, 2005

Aftur

Það er stundum gaman. Og jafnvel þó DV sé sorp.